![]() | ![]() | ![]() |
---|
Leikgleði
Vinátta
Tónlist
Sköpun
leikgledi.is

Um Leikgleði
Leikgleði námskeiðin eru á vegum Leikfélags Mosfellssveitar og hafa verið starfrækt síðan 1996. Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 6-16 ára. Stundum er einnig boðið uppá námskeið fyrir 18 ára og eldri. Öll námskeiðin enda með sýningu í Bæjarleikhúsinu.
Á námskeiðunum vinna nemendur með sjálfstraust, framkomu og framsögn, sigrast á feimni og kynnast hinum ýmsu þáttum sem snúast að leikhússtarfi.
6-8 ára
(nemendur fæddir 2014-2016)
Námskeið A
27. júní-1. júlí
Kennt er mánudag-föstudags kl. 9:45-11:45. Námskeiðinu lýkur með sýningu föstudaginn 1. júlí kl. 10:45.
Kennari er Elísabet Skagfjörð.
Verð: 15.000 kr.
Námskeið B
4.-8. júlí
Kennt er mánudag-föstudags kl. 9:45-11:45. Námskeiðinu lýkur með sýningu föstudaginn 8. júlí kl. 10:45.
Kennari er Elísabet Skagfjörð.
Verð: 15.000 kr.
9-12 ára
(Nemendur fæddir 2010-2013)
Námskeið B
13.-24. júní (frí 17. júní)
Kennt er á virkum dögum kl. 12:15-14:15. Námskeiðinu lýkur með sýningu föstudaginn 24. júní kl. 13:15.
Kennari er Eva Björg Harðardóttir
Verð: 25.000 kr.
Fullt - skráning á biðlista
Námskeið C
27. júní-8. júlí (frí 1. júlí)
Kennt er á virkum dögum kl. 12:00-14:00. Námskeiðinu lýkur með sýningu föstudaginn 8. júlí kl. 13:00.
Kennari er Elísabet Skagfjörð
Verð: 25.000 kr.
Fullt - skráning á biðlista
13-17 ára
(Nemendur fæddir 2005-2009)
27. júní-27. júlí (frí 1. og 15. júlí)
Kennt er á virkum dögum kl. 16:30-19:30. Á námskeiðinu verður settur upp söngleikur, sýningar 25.-27. júlí.
Kennari er Elísabet Skagfjörð
Verð: 39.000 kr.

Nánari upplýsingar
Leikgleði námskeiðin eru kennd í Bæjarleikhúsinu sem staðsett er við Þverholt í Mosfellsbæ. Endilega hafið samband í gegnum tölvupóst á leikgledi@gmail.com með spurningar. Vinsamlegast sýnið því skilning að það getur tekið 1-4 daga að fá svar. Einnig má hringja í Evu Björgu í síma 694-8964.
Fylgstu með Leikfélaginu á facebook og instagram og Leikgleði á facebook og youtube.
Addaðu LM á snapchat: leikmos
Skráning
Kennarar sumar 2022

Sumarnámskeið 2022

