Leikgleði
Vinátta
Tónlist
Sköpun
leikgledi.is
Um Leikgleði
Leikgleði námskeiðin eru á vegum Leikfélags Mosfellssveitar og hafa verið starfrækt síðan 1996. Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 6-16 ára. Stundum er einnig boðið uppá námskeið fyrir 18 ára og eldri. Öll námskeiðin enda með sýningu í Bæjarleikhúsinu.
Á námskeiðunum vinna nemendur með sjálfstraust, framkomu og framsögn, sigrast á feimni og kynnast hinum ýmsu þáttum sem snúast að leikhússtarfi.
9-12 ára
(Nemendur fæddir 2013-2016)
Námskeið A
Námskeiðið hefst mánudaginn 27. janúar og lýkur með sýningu miðvikudaginn 26. mars.
Kennt er á mánudögum kl. 16:00-17:30 (síðustu tvær vikurnar eru líka tímar á miðvikudögum).
Námskeiðinu lýkur með sýningu miðvikudaginn 26. mars. kl. 16:45 (nemendur mæta kl. 16:00).
Kennari er Elísabet Skagfjörð.
Verð: 25.000 kr.
Kennsludagar námskeiðsins eru eftirfarandi:
Mán 27. janúar
Mán. 3. febrúar
Mán. 10. febrúar
Mán. 17. febrúar
(Vetrarfrí mán 24. febrúar)
Mán. 3. mars
Mán 10. mars
Mán 17. mars
Mið 19. mars
Mán 24. mars
Mið 26. mars (sýning)
13-16 ára
(Nemendur fæddir 2009-2012)
Námskeið B
FULLT - SKRÁNING Á BIÐLISTA
Námskeiðið hefst mánudaginn 27. janúar og lýkur með sýningu miðvikudaginn 26. mars.
Kennt er á mánudögum kl. 17:45-20:00 (síðustu tvær vikurnar eru líka tímar á miðvikudögum).
Námskeiðinu lýkur með sýningu miðvikudaginn 26. mars. kl. 19:00 (nemendur mæta kl. 17:45).
Kennari er Elísabet Skagfjörð.
Verð: 35.000 kr.
Kennsludagar námskeiðsins eru eftirfarandi:
Mán 27. janúar
Mán. 3. febrúar
Mán. 10. febrúar
Mán. 17. febrúar
(Vetrarfrí mán 24. febrúar)
Mán. 3. mars
Mán 10. mars
Mán 17. mars
Mið 19. mars
Mán 24. mars
Mið 26. mars (sýning)
Skráning
Kennarar sumar 2024
Vornámskeið 2025
Vinsamlegast sendið tölvupóst með skráningu á leikgledi@gmail.com
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja skráningunni:
- Nafn nemanda
- Kennitala nemanda
- Nafn forráðamanns
- Netfang forráðamanns
- Sími forráðamanns
- Sími nemanda (ef til er)
- Annað sem þú vilt koma á framfæri
Ef einhverjar spurningar vakna má hafa samband á leikgledi@gmail.com eða hafa samband við Evu Björgu í síma 6948964.
Nánari upplýsingar
Leikgleði námskeiðin eru kennd í Bæjarleikhúsinu sem staðsett er við Þverholt í Mosfellsbæ. Endilega hafið samband í gegnum tölvupóst á leikgledi@gmail.com með spurningar. Vinsamlegast sýnið því skilning að það getur tekið 1-4 daga að fá svar. Einnig má hringja í Evu Björgu í síma 694-8964.
Fylgstu með Leikfélaginu á facebook og instagram og Leikgleði á facebook og youtube.
Addaðu LM á snapchat: leikmos